top of page
Maðurinn er ólíkur öðrum dýrum á þann hátt að hann hannar byggingar sínar út frá notagildi.
Mörg dýr byggja sér bú og jafnvel skreyta það eða draga fallega hluti að sér en engin dýr byggja ólík hús til mismunandi athafna eins og maðurinn. Annað sem einkennir manninn umfram önnur dýr er að hans eigin húð dugar ekki til að halda á honum hita og er hann því háður því að nota fatnað og lifa að hluta til inni. Þannig má í raun segja að byggingar séu ÞRIÐJA HÚÐ mannsins!
Úr bókinni Inni eftir Guju Dögg Hauksdóttur

____________________Importance of interior design to human wellbeing___________________

Ég rakst á virkilega áhugaverða grein á netinu sem má finna með því að ýta á myndina hér til hliðar. Þar er fjallað um skoðanir nútíma heimspekingsins Alain de Botton á innanhússhönnun. Þar kemur fram að eitt það mikilvægasta sem við gerum í lífinu er að skapa heimili. Við leggjum vinnu í það að finna nákvæmlega réttu hlutina sem munu henta sem best á heimili okkar. Þar sem heimili okkar eru kannski ekki stórfenglegasti staður sem við munum fara á en til að mynda þegar við erum búin að vera lengi í burtu frá heimili okkar eins og til dæmis í útlöndum, þá finnum við fyrir þeirri þörf að komast aftur heim. En það er vegna þess að heimili okkar hjálpa okkur að muna hver við sjálf erum þar sem þau fela í sér okkar andlegu gildi og eiginleika. Því eigum við til að leggja okkur mikið fram við það að finna nákvæmlega réttu hlutina inn á heimili okkar sem geta miðlað réttum skilaboðum um okkur sjálf. Þegar við finnum þessa réttu hluti minna þeir á þá eiginleika sem við hrífumst að, styðja og ýta undir mikilvæga eiginleika í okkur, uppörva okkur og veit okkur áminningu og huggun.

Þörfin fyrir því að byggja heimili er nátengd þörfinni fyrir því að koma á stöðugleika og skipuleggja okkur sjálf. Það er nefnilega ekki alltaf nóg að vita hver við erum í okkar eigin huga heldur þurfum við stundum eitthvað áþreifanlegra. Heimili er sá staður þar sem sál okkar finnur að hún hefur fundið sitt líkamlega ílát þar sem allir hlutir þess minna okkur á okkar skuldbindingar og kærleika. 

IMG_9606

IMG_9606

IMG_9601

IMG_9601

IMG_9597

IMG_9597

IMG_0782

IMG_0782

IMG_8099

IMG_8099

IMG_8085

IMG_8085

IMG_8095

IMG_8095

IMG_0779

IMG_0779

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page