Á listnámsbraut við Menntaskólann á Egilsstöðum
Kennari: Bylgja Lind Pétursdóttir
____________________Gryfjan____________________
Ég fékk það verkefni að koma með hugmyndir að því hvernig væri hægt að endurnýta þetta annars úrelta rými í Menntaskólanum á Egilsstöðum sem kallað er Gryfjan. Mér fannst það nýtast best áfram sem staður fyrir nemendur til þess að setjast á, læra, spjalla eða borð. Það fyrsta sem ég myndi vilja gera er að skipta út flísunum fyrir parket, það yrði bæði hlýlegra og fallegra. Síðan myndi ég vilja endurklæða bekkina í svona flauel klæðum, jafnvel gráum, þetta gerir rýmið einnig talsvert hlýlegra og stílhreinna. Veggina myndi ég síðan vilja mála helst gráa og jafnvel með kalkmálningu. Þar sem flísarnar ná síðan upp að bekkjunum væri hægt að fjarlægja þær og mála eða mála yfir þær. Að lokum valdi ég það sem mér fannst henta á veggina en það var einfaldlega lestrarljós, heimskort, klukka og sjónvarp og valdi ég síðan nokkuð litríka og fallega púða sem og plöntur aðeins til að brjóta upp gráa litinn. Við þetta verkefni notaðist ég við photoshop.

Fyrir

Eftir

Eldhús

Svefnherbergi

Moodboard
Þegar maður er að hanna rými og vantar stað til þess að safna hugmyndum sínum saman er mjög gott og þægilegt að byrja á því að búa til svolítið sem kallast Moodboard. Þar færðu góða yfirsýn yfir útlit og tilfinningu rýmisins sem þú villt hanna. Þangað geta farið myndir af rýmum, byggingum, húsgögnum, hlutum, efnivið, litum, birtu og öllu því sem veitti þér innblástur. Hægt er að vinna þau í photoshop, paint eða illustrator til dæmis.
Baðherbergi

____________________Teikningar í Sketchup og vinnsla í photoshop____________________
Hér vann ég að virkilega skemmtilegu verkefni þar sem ég átti að hanna mitt eigið rými eða hús og teikna það upp. Ég byrjaði á því að handteikna hugmyndina að rýminu niður á blað og þegar ég var komin með nokkuð góða teikningu byrjaði ég að teikna hana upp í Sketchup. Ég ætlaði upprunalega að gera þriggja hæða hús en vegna tíma og vinnu endaði ég með tveggja hæða hús sem varð eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Útidyrnar eru merktar inn neðst á myndinni, vinstra megin við þær er síðan lítið herbergi sem nýst gæti sem geymsla eða auka herbergi. Síðan er það svefnherbergi með einskonar fatarými. Þar næst alrými sem samanstendur af eldhúsi og borðstofu og síðast en ekki síst baðherbergið við stigann. Upp stigann labbar maður í sjónvarpshol með arinn, pool aðstöðu og bar. Á þriðju hæðinni hafði ég síðan hugsað mér að hafa skrifstofu aðstöðu. Að lokum átti ég síðan að velja mér rými hússins til þess að innrétta í Photoshop sem mér finnst virkilega skemmtilegt. Ég valdi mér eldhúsið og borðstofuna en fyrir og eftir myndir af því má sjá hér fyrir neðan.

Útidyr

Fyrir
