top of page

Forstofuskápar
Ef það eru margir á heimili getur verið sniðugt að reyna að skipta upp aðstöðunni svo það skapist rými fyrir hvern og einn, aðstöðu til að hengja upp á, geyma skóna og skúffu, skáp eða körfu undir önnur föt. Það er síðan ansi mikilvægt að hafa bekk til þess að setjast á og getur hann einnig verið nýttur sem geymsluaðstaða undir honum. Mér finnst síðan mjög sniðugt ef maður hefur ekki pláss fyrir snaga eða fatahengi eða vil einfaldlega ekki hafa fötin sýnileg en samt ekki alltaf þurfa að hengja fötin á herðatré inn í skáp, að kaupa svona króka á stöngina inn í skáp sem maður getur þá hengt fötin beint á. Til þess að hafa fataskápana ekki of troðna getur verið gott að tæma til dæmis vetrarföt á sumrin og öfugt og koma fyrir á öðrum stað.




bottom of page