top of page

Veggskreyting

Þeir sem vilja gera eitthvað herbergi extra skrautlegt er til dæmis hægt að gera það sem kallast á ensku "accent wall". Það er einn veggur herbergisins sem er gerður öðruvísi en hinir á einhvern hátt. Þessi aðferð er til dæmis tilvalin inn í svefnherbergið og getur jafnvel komið í staðinn fyrir rúmgafl. Það eru til margar leiðir til þess að gera svona vegg en best er að byrja á því að finna mynstrið og efniviðinn sem maður vill og er tilvalið að finna hugmyndir af því á netinu. Síðan ákveður maður lit og kaupir efniviðinn. Ég valdi að hafa mynstrið bara einfalt og kassalaga, nota spýtur og hafa vegginn svartan. Síðan byrjaði ég einfaldlega að mæla vegginn og sjá fyrir mér hversu breitt bil ég vildi á milli spýtnanna. Þar næst byrjaði ég að saga spýturnar og að lokum notaði ég "Nano gel" límband úr Byko, sem er einskonar silíkon "double tape", til þess að líma spýturnar á vegginn.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page