
Skápahöldur
Það eru ekki allir sem hafa tök né efni á því að rífa út heilt eldhús og gera það upp frá grunni né nennir að fara út í það að breyta litnum á skápunum á einn eða annan hátt. Það eru hins vegar smávægilegri hlutir sem hægt er að gera sem geta breytt miklu. Þegar ég keypti mína íbúð voru allar innréttingarnar í eldhúsinu mjög nýlegar og fínar en það var samt eitthvað sem ég vildi gera til þess að breyta þeim þannig þær væru meira eins og ég vildi hafa þær. Ég komst að því að ég var ekki hrifin af handföngunum, enda ekki mikið fyrir silfurlitaðan. Ég tók því upp á því að spreyja öll handföngin í íbúðinni svört, sem er meira minn litur. Það voru nefnilega allir skápar og skápahöldur í íbúðinni eins. Þetta fannst mér gjörbreyta útliti íbúðarinnar og kom mjög vel út. Að mínu mati eru skápahöldur nefnilega svolítið svona punkturinn yfir i-ið og um að gera að leika sér svolítið með þær.



