top of page

Barnarúm

Hvern dreymdi ekki að eiga eitthvað ótrúlega spennandi og skemmtilegt rúm sem krakki. Það varð til dæmis strax talsvert meira spennandi þegar maður fékk himnasæng yfir rúmið og geta þær einnig verið mjög fallegar. Hægt er að smíða ákveðinn ramma yfir það svo það myndi einskonar hýsi sem hægt væri þá til dæmis að hengja ljós á. Kojur geta síðan verið mjög skemmtilegar og nytsamlegar þar sem hægt er að nýta plássið undir henni ef herbergið er kannski ekkert rosalega stórt. Ef að systkini þurfa síðan að deila herbergi eru kojur auðvitað mjög hentugar en einnig er hægt að skipta herberginu svolítið upp svo þau fái sitthvort rýmið. Til dæmis setja einhverskonar hillur á milla rúmanna eða mála rýmin í sitthvorum litnum.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page