top of page

Eyja

Það eru vissulega ekki allir með eyju en mér finnst alltaf verða meira um það enda mjög flott og þægilegt. Eyjur geta verið á marga vegu, langsum, þversum, þær eru mis breiðar og langar, með pláss fyrir barstóla, með skúffum, skápum og jafnvel færanlegar.
Fólk er síðan ýmist með helluborðið og/eða vaskinn í eyjunni. Mér finnst einmitt mjög gott að hafa helluborðið í eyjunni hjá mér svo maður snúi ekki að veggnum þegar maður er að elda heldur snýr maður út í stofuna og borðstofuna. Á eyjunni finnst mér síðan tilvalið að hafa ávaxtaskál og ef þú ert með helluborðið að hafa einhverskonar bakka með fínum olíum, kryddum og öðru fíneríi. Síðan ef kostur er á að hafa barstóla við eyjuna þarf að passa að þeir séu í réttri hæð, því barstólar eru oft of háir fyrir eyjur. 

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page