top of page

Þvottasnúrur
Hægt er að finna nytsamlegar og snyrtilegar leiðir til þess að hengja upp þvottinn. Til eru allskyns snúrur og stangir sem hægt er að toga upp og niður eftir þörfum. Þannig að þegar maður er að hengja á þær dregur maður þær niður en þegar fötin eru komin á eða þær eru ekki í notkun dregur maður þær aftur upp þannig þær taki ekki eins mikið pláss. Einnig er hægt að hengja upp ansi smekklegar stangir, súlur, spýtur eða pípur sem hægt er þá að hengja á föt og líta jafnvel bara vel út. Síðan er það alltaf gamla góða samanbrotna þvottagrindin sem hægt er þá að tilla inn í skáp eða bak við hurð þegar hún er ekki í notkun.




bottom of page