
Sófaborð
Það er hægt að útfæra sófaborð á ýmsa vegu. Þau eru ýmist kassalaga, hringlótt, tvö saman, með hillu eða skúffum. Það fer einnig svolítið eftir sófanum hvernig best er að útfæra það. Ef þú ert til dæmis með sófa með tveim tungum og því ansi þröngt pláss á milli tungnanna er nánast útilokað að vera með ferkantað sófaborð. Það má alls ekki vera of stórt og þarf helst að vera hringlaga svo auðvelt sé að ganga með fram því. Ef þú ert ekki með neinar tungur á sófanum heldur bara beinan tveggja til þriggja sæta sófa þarftu í raun ekki stórt sófaborð en þar finnst mér ferkantað sófaborð koma sterk inn. Ef þú ert síðan með önnur sæti við hliðina á þessum sófa er sterkur leikur að hafa jafnvel tvö hringlótt sófaborð saman svo hægt sé að færa þau til eins og hentar. Mér finnst síðan lang fallegast að hafa sem minnst á sófaborðunum en ef maður þarf meira pláss er gott að hafa skúffu eða auka hillu.



