
Gardínur
Það skiptir mismiklu máli í hverju rými fyrir sig að hafa gardínur. Ég myndi segja það nokkuð nauðsynlegt að hafa gardínur inni í stofu. Gardínur gera rýmið hlýlegra og heillegra. Það er hins vegar hægt að hengja gardínur "vitlaust" upp. Það sem þarf að passa þegar maður er með gardínuslá er að hafa hana ekki alveg ofan í glugganum heldur nær loftinu. Einnig hvort sem maður er með slár eða brautir er mikilvægt að hafa þær lengra út til hliðstæðra veggja heldur en að gardínurnar rammi einungis inn gluggann. Þetta stækkar rýmið sem og gluggann. Að lokum þarf síðan að passa að gardínurnar séu í réttri lengd niður til gólfs, þar sem það er hvorki smart að þær séu of stuttar né að stór hluti þeirra liggi á gólfinu. Þær eiga rétt svo að ná að snerta gólfið.



