Sófi
Það er ekki eins mikið um það nú til dags að hafa eina fína setustofu og síðan sjónvarpshol. Heldur er meira um það að fólk sameini þetta tvennt. Er þá bara með nokkuð fallegan sófa, sófaborð, sjónvarp og allt sem þarf á stað sem er þá bæði nýtt sem setustofa sem og sjónvarpsaðstaða. Þá þarf maður vissulega að vera með flottan sem og þægilegan sófa. Það sem mér finnst passa fullkomlega fyrir það eru flauel sófar. Þeir eru bæði mjög smekklegir sem og þægilegir. Einnig finnst mér mjög notalegt að hafa allavegana eina tungu. Ef maður á síðan stóra fjölskyldu og nýtir rýmið mikið sem notalega sjónvarpsaðstöðu er gott að hafa sófa með tveim tungum eða hornsófa sem er kannski tauklæddur. Ef fólk notar rýmið hins vegar meira sem setustofu getur verið smekklegra að hafa beinan tveggja til þriggja sæta sófa og kannski staka hægindastóla og jafnvel leðurklæði.




