
Gallery veggur
Þegar kemur að því að setja myndir og málverk upp á vegg eru engar reglur. Það getur hins vegar verið gott að leita sér hugmynda og hafa ákveðin viðmið. Ýmist er hægt að raða myndunum í beina línu og hafa þá jafnvel allar myndir í sömu stærð, í alveg eins römmum með svipuðu innihaldi. Síðan kemur einnig vel út að raða myndunum þvers og kruss og hafa þær kannski í mismunandi stærðum, í mismunandi römmum með gjörólíku innihaldi. Síðan er auðvitað hægt að bæta fleiri hlutum á vegginn með myndunum. Einnig er sniðugt fyrir þá sem eru óákveðnir, að hengja upp myndahillur og raða sífellt upp á nýtt á þær myndum og jafnvel hlutum. Hægt er að láta myndirnar flæða frá einum vegg yfir á annan eða nota þær til þess að innramma ýmis húsgögn eins og sjónvarp eða rúmgafl.



