top of page

Skartgripir
Það eru margar leiðir til þess að geyma skartgripina sína. Sumir vilja geyma þá inni í skáp eða ofan í skúffu en mér finnst skemmtilegra að hafa þá sjáanlega eða í fallegum ílátum þar sem þeir fá að njóta sín sem skraut. Það er auðvitað hægt að kaupa allskyns skartgripaskrín og -standa en einnig er hægt að nota aðra hluti sem eru kannski ekki ætlaðir til þess að geyma skartgripi. Ég til dæmis fann í Ikea svona minnistöflu eða grind sem vanalega er notuð til að hengja á blöð, en mér finnst hún koma rosalega vel út inni á baði með skartgripunum mínum á. En síðan er einnig hægt að finna allskyns fleiri hugmyndir.




bottom of page