
Leggja á borð
Það eru til ýmsar leiðir og ýmsir hlutir sem hægt er að notast við þegar kemur að því að leggja á borð, dúka, diskamottur, glasamottur, servíettur, servíettuhringi og svo auðvitað bara fallegt borðstell, hnífapör og annað borðdjásn eins og blóm eða kertastjaka. Eins og með allt annað þá finnst mér fallegast að halda sig við nokkra ákveðna liti. Síðan ef maður er ekki með dúk verður maður að velja allt svolítið út frá borðinu, ef þú ert til dæmis með ljóst borð geta svartar diskamottur verulega poppað það upp eða öfugt ef þú ert með dökkt borð að kaupa jafnvel bast diskamottur. Ég er síðan til dæmis alltaf með platta á borðstofuborðinu þar sem ég er með salt og pipar, glasamottur, tannstöngla, kertastjaka, blómavasa og annað skraut sem ég leyfi þá bara að vera í matarboðum.



