top of page

Baðherbergisskápar
Það er mjög bandarískt að hafa tvo vaska og tvo spegla inni á baði en virðist vera að aukast hér á landi. Mér finnst það persónulega tilgangslaust og myndi alltaf frekar vilja hafa meira borðpláss en það lítur hins vegar vel út og myndar ákveðna hótel stemningu. Það sem myndar einnig hótel stemningu er að hafa handklæðin fallega brotin saman í opnum hillum eða á slám. Annars myndi ég vilja hafa flest allt annað inni í lokuðum skápum fyrir utan kannski eitthvað smotterí á borðunum eins og skartgripi, bómull og eyrnapinna í fallegum ílátum. Heima hjá mér er ekki þvottahús og eru því þvottavél og þurrkari inni á baði í innréttingunni. Þá finnst mér mjög mikilvægt að hafa skápahurðar eða alla vega einhverskonar tjald fyrir.




bottom of page