top of page

Borðstofustólar

Til er mikið úrval af fallegum borðstofustólum og getur verið gaman að velja þá. Hægt er að hafa þá á ýmsa vegu og allskyns samsetningar. Þeir eru ýmist úr timbri, stáli, bambus, plasti með taui, leðri eða flaueli. Síðan getur komið vel út að hafa bekk öðru megin við ferkantað borð og jafnvel hafa aðeins öðruvísi stóla á endunum, jafnvel aðeins tignarlegri með örmum. Eins og með hringlaga borð getur verið flott að hafa tvær tegundir af stólum sem maður raðar síðan sitt á hvað. Það sem mér finnst síðan skipta talsverðu máli ef maður er ekki með alla stóla eins er að hafa annað hvort fæturna svipaða, hafa þá úr sama efni eða sömu klæði.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page