
Náttborð
Það sem mér finnst skipta máli með náttborð er að þau séu í réttri hæð, sem sagt í svipaðri hæð og rúmið. Gott er að hafa eina skúffu í því og það getur verið mjög þægilegt að hafa það frístandandi þ.e.a.s hengt upp á vegg. Það er síðan hægt að útfæra náttborð á ýmsa vegu á annan hátt en að fara bara út í búð og kaupa náttborð. Það er margt annað sem getur einnig nýst á sama hátt og náttborð eins og hillur, kollar, rúmgaflar, körfur og fleira. Gott getur verið að nota hillu til dæmis ef herbergið er lítið og þá jafnvel setja hana á hliðstæðan vegg. Einnig væri þá hentugt að búa til rúmgafl með hólfum á hliðunum sem hægt væri að setja hluti í. Síðan er hægt að nota hvað sem er sem er í réttri stærð og þjónar tilgangi náttborðs, tilla því við hlið rúmsins, hengja upp á veggi eða jafnvel láta það hanga frá loftinu. Einnig getur verið flott að hafa mismunandi náttborð sitthvoru megin við rúmið.



