top of page

Veggir í barnaherbergi
Hér er fullkomlega eðlilegt að jafnvel mála fríhendis beint á vegginn. Barnaherbergi eru þekkt fyrir það að vera mjög litrík og fá krakkarnir vissulega oft að ráða því svolítið hvernig þau vilja hafa það. Ég myndi persónulega reyna að halda mig við einhverja ákveðna litapallettu. Síðan reynir maður auðvitað að ýta undir áhugamál, þroska og sköpun barnsins. Algengt er til dæmis að sjá myndir af dýrunum, stöfunum, tölunum og jafnvel heimskorti eða plánetunum. Bókum er sniðugt að stilla upp í hillum upp á vegg. Hægt væri að búa til kalkvegg fyrir krakka sem eru verulega skapandi og kannski klifurgrind fyrir þá sem eru mjög virkir.




bottom of page