top of page

Óhreint tau
Þetta er ekki það fallegasta sem maður sér á heimili fólks en það er hægt að setja óhreinu fötin á góðan stað eða gera þetta aðeins huggulegra. Heima hjá mér eru þvottavélin og þurrkarinn inni á baði falin bak við skápa. Inni á baði voru síðan einmitt þrír skápar niður við gólf sem voru með hillum í. Ég fann ekki neitt notagildi fyrir þá annað en að fjarlægja hillurnar úr þeim og kaupa þrjár óhreina taukörfur í Rúmfatalagernum sem smell pössuðu inn í. Þá var ég komin með nóg pláss fyrir óhreint tau sem var ekki sjáanlegt. Síðan er hægt að kaupa einhverjar fallegar körfur eða tunnur ef ekki er hægt að nýta hillur eða skápa sem eru nú þegar til staðar.




bottom of page