top of page

Jólaskreytingar

Öll höfum við okkar stíl og finnst mér það koma vel fram í jólaskreytingum. Rauður og grænn eru svolítið táknlitir jólanna enda vissulega mjög hátíðlegir. Síðan eru margir sem gjörsamlega missa sig í litunum, hafa marglitar seríur og nota alla liti regnbogans sem mér fannst reyndar geggjað sem barn. Mér finnst hins vegar vera meira og meira um það að fólk sé farið að taka inn gull, silfur eða einhverja tiltekna liti og halda sig við þá. Ég er einmitt algjörlega þar þar sem rauður er alls ekki minn litur og vil ég að jólaskreytingarnar tóni vel við heimilið mitt og sé því ekki yfirgnæfandi litríkt. Þannig að mínu mati ef þú ert að fara eftir hefðum notastu kannski meira við rauðan, ef þú ert að skreyta fyrst og fremst fyrir börnin ertu kannski með þetta svolítið litríkt en ef þú ert með aðeins meiri minimaliskann stíl ertu meira í jarðlitum og heldur þig við nokkra liti.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page