top of page

Rúm

Fólk hefur mismunandi skoðun á því hvernig það vill hafa rúmið sitt, lítið eða stórt, mjúkt eða hart. Það sem mér finnst skipta mestu máli er að hafa einfaldleikann í fyrirrúmi. En síðan verður maður að láta hlutina vega vel á móti hvor öðrum. Til að mynda er ég með svartan vegg fyrir aftan rúmið, svarta rúmgrind og svört náttborð. Þá reyni ég að ná smá lit inn í rýmið með því að vera með lituð rúmföt og skrautpúða. Það getur síðan gert gríðarlega mikið fyrir svefnherbergið að vera með rúmgafl á rúminu, það gerir herbergið tignarlegra og heillegra. Við enda rúmsins er síðan algengt að vera með bekk sem hægt er að tilla sér á þegar maður klæðir sig á morgnana.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page