top of page

Eldhússkápar

Algengt er að hafa flest bak við lokaða skápa nema kannski það sem þú notar mjög reglulega eins og brauðrist, kaffivél, hrærivél, blandara, örbylgjuofn og þess háttar. Það sem mér finnst hins vegar vera að koma sterkt inn eru einskonar tækjaskápar. Fólk er meira farið að fela þessi heldur ljótu eldhústæki inni í skáp þar sem þau eru samt mjög aðgengileg og ekki þarf að taka þau út úr skápnum til þess að nota þau. Þá er alltaf bara hægt að fela þau þegar þau eru ekki í notkun. Þar sem mér finnst síðan koma mjög vel út er að setja upp fallegar hillur inn í eldhúsi og setja á þær allt það fallega eldhúsdót sem þú átt sem og annað skraut. Ég er til dæmis með eina slíka og geymi ég þar t.d mortel, karöflu, kokteilhristara, koparkönnu og bolla, fallegt matarstell, matreiðslubækur og allskyns skraut. Mér finnst þetta gera eldhúsið mjög fallegt og persónulegt.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page