top of page

Sturta/bað

Fólk er ýmist með bað eða sturtu eða jafnvel bæði. Ég myndi persónulega ekki geta verið án baðkars og finnst mér frístandandi baðkör rosalega falleg. Í íbúðinni minni var einungis sturta en við fundum bara svona frístandandi bað í Bauhaus sem er úr einhverskonar stáli og smelltum því þar sem sturtan er, þá nýtist það sem sturta sem og bað. Einnig geta hornböð verið hentug og þessi klassísku niðursteyptu böð sem eru oftast svona 2 in 1 sturta og bað. Sumum finnst mögulega sturtuhengi betra eða leggja einfaldlega ekki í það að setja upp sturtugler. Ég myndi hins vegar alltaf kjósa sturtuglerið. Svo geta þau líka verið svo falleg með til dæmis svörtum ramma eða mörgum svörtum römmum. Blöndunartækin geta síðan einnig verið mjög falleg og gert mikið fyrir rýmið, svört og gyllt koma t.d sterk inn. Síðan getur verið hentugt og fallegt að vera með innbyggðar hillur eða glugga til þess að geyma sápurnar á.

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinteres

© 2023 by Design for Life.

Proudly created with Wix.com

bottom of page